Smá raus og rugl.........

Enn og aftur er ég svona eiginlega orðlaus á þetta lyklaborð. Eða kannski vantar mig bara unhvað til að rita um.

Hefi eigi geð í mér að fjalla um hvernig Herr Generáll Björn Bjarnason virðist geta klúðrað flestu sem hann kemur nálægt, eins og best sést í Keflavíkur-Reykjanes lögreglumálum.

Ekki nenni ég að tjá mig um varðskipin okkar sem ekki er hægt að halda úti sökum fjárskorts. En það má byggja stærra og öflugra skip sem líkast til eyðir olíu á við báða varðbátana sem liggja bundnir.

En Siggi litli og ég kíktum aðeins eftir gæs í morgun og náðum 18 stykkjum á rúmum 35 mínútum. Þá hættum við og héldum heim á leið sáttir með aflann.

 

 

Siggi wating for the goose. Me and the birds. Guðfinnur the goose.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Páll Jóhannesson

Stendur ekki skammstöfun ráðherrans BB fyrir ,,bara bull?" það held ég amk. kveðja að norðan bra bra

Páll Jóhannesson, 24.9.2008 kl. 20:38

2 Smámynd: Steingrímur Helgason

Þó það væri morð að segja orð, væri það ekki svaravert.

Steingrímur Helgason, 24.9.2008 kl. 21:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband