11.11.2008 | 18:30
Hvar er ábyrgðin????
Ég get nú ekki orða bundist þó í bloggfríi sé.
Valgerður talar um pólitíska ábyrgð, jú hún er víst minni en ekki neitt. Sem sagt orðin tóm. Bara segja,,~Eg tek fulla pólitíska ábyrgð á þessu.~ Þá er málið dautt. Held að Valgerður og aðrir sem á sínum tíma gáfu útrásarvíkingunum ríkis bankana ættu að taka Bjarna bóksala sér til fyrirmyndar og segja af sér og taka afleiðingum sinna fyrri gjörða sem nú eru að koma í bakið á heilli þjóð.
Og nú er ég aftur farinn í bloggfrí og mun taka á axlir mér pólitíska ábyrgð á þessari örfærslu minni.
Óvanalegt að þingmenn segi af sér | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
HEYR, HEYR !
Helga Rós Sveinsdóttir, 11.11.2008 kl. 23:05
Tek undir hvert einasta orð sem þú og Helga Rós segið.
Haraldur Bjarnason, 12.11.2008 kl. 00:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.