Barnastúss.........

Jæja það hefur nú verið mikið að gera hjá mér síðustu daga.

Brimdís Klara dóttir mín kom með okkur Sólveigu heim eftir Clapton tónleikana.

Laugardagskvöldið notuðum við til að fara á Lónið og horfa á æðislega flugeldasýningu sem er árlegur viðburður.

Á sunnudeginum var hún að dúllast með mér vestur á Jökulsárlóni. Það var bara æðislega gaman að geta verið svona mikið með henni. Jón Ingi og Einar Trausti komu við á Lóninu. Þeir náðu að sigla með mér síðasta túrinn þann daginn og fengu að fara rúnt með honum Val á Zodiac. Börnin voru bara ánægð með þetta allt.

Ég ákvað að fara ekki á verkstæðið í gær og í dag. Vil fá að njóta þess að þvælast um með börnin og gera unhvað skemmtilegt.

 

 

My litle girl at the Glacier lagoon. Brimdís Klara in a Zodiac Firework My girls, Brimdís, Sólveig and Sólveigs son Veigar and my dog Balto. Jökulsárlón

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brimdís Klara Runólfsdóttir

Bjó mér til svona til að getað commentað og skrifað í gestabókina þína :)

Er búin að skemmta mér vel hérna á höfn hjá þér gamli :D Fynst gaman að við eygum sama áhuga mál sem við bæði elskum að gera :D nú get ég fylst betur með þegar ég fer heim aftur á krókin :D Sé þig á morgun gamli :D

Brimdís Klara Runólfsdóttir, 13.8.2008 kl. 01:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband