26.7.2008 | 22:01
Ketilásdraumurinn hvarf hjá sumum.
Jebbs ég lauk vinnu deginum í gær með því að hjálpa frúnni við skúringar á netaverkstæðinu.
Ekki gleymdi Binni bakaragæd að sækja mig í morgun. Unhver þreyta var í unhvurjum sem kíkt höfðu á dansiball í gærkvöld og lítt sofið fyrir brottför vestur á Jökulsárlón. Og eftir svona langa stranga erfiða nótt er nú ekki slæmt að hafa góða öxl að hvíla á.
Það var þungbúið í morgun. Síðan kom þoka. Svo skein sólin. Svanný mín kom vestur eftir því henni leiddist heima. Ingi Björn bauð henni með sér á Zodiak.
Heilt á litið var þetta bara hin ágætasti dagur þó svo að þokan læddist aftur yfir undir kvöldið.


Við ætluðum nú að vera norður í landi í kvöld á dansiballi í Ketilás, en vinnan gengur fyrir skemmtanalífinu.
Athugasemdir
Að taka þetta skemmtanalíf sem þú kallar vinnu fram yfir virðíngaverðar víziteríngar á betur byggilega hluta landzinz er náttla hjákátlegt ~zuð~.
Ég hefði til dæmiz grillað ofan í þig rándýrann þjóðvegarolluúnga á nýja, tvegga hæða kolagrilleríinu mínu.
Steingrímur Helgason, 26.7.2008 kl. 23:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.