5.7.2008 | 07:33
Hátíð í bæ!!!!!!!
Já þá er humarhátíðin byrjuð.
Steini og Ása ásamt börnum eru komin hingað til okkar og er það beZta mál. Ronni sonur minn er líka mættur á svæðið. Við kíktum aðeins á svæðið í gærkvöld og fengum okkur humarloku á Hleininni. Hleinin er veitingastaður sem er bara starfræktur tvo daga á ári. Þessar lokur svíkja ungvan.
En núna er ég að fara vestur á Jökulsárlón að sigla og ætlar fólkið mitt að koma í heimsókn og taka léttan rúnt með mér um lónið á KLAKA litla. Nú og ef ég verð ekki á Klaka þá bara á Jökli, Dreka eða Jaka.

Athugasemdir
Ég vona að allir hafi komist þurrir heim aftur ...
Vildi óska að ég væri með í stuðinu ... neiiii ég hef það fínt hérna heima ...
Maddý (IP-tala skráð) 5.7.2008 kl. 22:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.