25.6.2008 | 22:15
Smár en knár kátur kútur...
Þá er ég búin að vera í tvo daga á netaverkstæðinu, og var það bara fínt mál. Fámennt en góðmennt þar.
Í fyrradag hafði ég Kristmar Helga með mér í vinnuna vestur á Jökulsárlón. Sá hafði gaman af þessu brölti. Fá að koma og sigla í svona furðulegum bát sem bæði getur keyrt á landi og siglt um lónið. Ekki versnaði nú ástandið þegar við skruppum með Inga Birni á Zodiak til að kíkja á seli. Valdi Íslenski ruddi tók pjakkinn með sér í tvær svona gúmmítuðruferðir.
Sá stutti var alveg búin á því þegar deginum lauk og svaf í Skódilakknum alla leiðina heim.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.