1.4.2008 | 19:03
Spurning um tíma.....
Svo er nú það.
Héðan er fátt að frétta.
Og þó.
Var að fá þær fréttir að lyfjameðferðin hjá pabba sé ekki að skila neinu. Þá skilst mér að allt sé fullreynt í þeim málum.
Frétti í dag af andláti Trausta Finns frá Djúpavogi. Við vorum saman til sjós á Skógey í nokkur ár. Um tíma bjó hann heima hjá mér í Stuðlafossi.
Þeir virðast vera að hverfa yfir móðuna miklu þessir fyrrum skipsfélagar mínir.
En jú þetta er víst það sem bíður okkar allra. Bara spurning um tíma......
Athugasemdir
Jú það er rétt hjá þér þetta er það eina í lífinu sem við vitum með vissu þ.e.a.s. einhvern tíman tekur þetta enda.
Ítreka enn og aftur góðar kveðjur til höfðingjans hans pabba þíns sem ég og Margrét mín berum svo mikinn hlýhug til.
kv Palli
Páll Jóhannesson, 1.4.2008 kl. 21:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.